Enn fréttastjóraskipti á Stöð 2

DV segir frá því í dag að Óskar Hrafn Þorvaldsson hafi lagt fram uppsagnarbréf sem fréttastjóri Stöð 2. Ætla þessi skipti engann endi að taka á þessari blessuðu sjónvarpsstöð. DV segir að fréttamenn Stöð 2 hafi fundið uppsagnarbréfið í síðustu viku. Hvað segir þetta okkur um fréttamennina? Þeir sitja á frétt af því að hún snýr að þeim sjálfum en öskra svo af vandlætingu þegar einhver þegir um frétt sem snýr að öðrum. Það verður ekki af fréttamannsstéttinni skafið frekar en enn einum farsanum á Stöð2.

Það ER 1975 aftur

Óhuggulegt er að fylgjast með hversu pólitísk afskipti eru mikil þó vissulega sé nauðsyn á því þegar hákarlarnir sem settu okkur á hausinn reyna að seilast til áframhaldandi áhrifa.

Mér finnst að þar sem við þjóðin eigum bankana eigi ríkið að senda hverju okkar jafnan hlut í bönkunum en óheimilt sé að selja hlutinn fyrr en í fyrsta lagi eftir 5 ár og þá megi enginn einn eða tengdir aðilar eiga meir en 15 - 20 prósent í banka og erlendir aðilar eigi a.m.k. fjórðung.

Ég viðurkenni á hinn bóginn að mér verður mátulega óglatt við tilhugsunina um misvitra stjórnmálamenn sem eru að skipta sér af fjöreggjunum okkar.


mbl.is Wernerssonum líklega úthýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá slys hér út um gluggann

Það var hreint ömurlegt að horfa á flugeldaslys hér út um gluggann. Það verður augljóslega aldrei nægilega vel vandað um fyrir unglingum þegar flugeldar og sprengiefni eru á útsölu á hverju götuhorni.
mbl.is Með áverka eftir flugeldafikt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handgenginn Finni

Ég hélt að Framsóknarmenn væru að reyna að hreinsa sig af mönnum tengdum Finni Ingólfssyni. Þetta er á málefnunum.com

Afhverju ætli fjölmiðlar bendi þá ekki á þá staðreynd að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sem á að vera óháður frambjóðandi hafi verið í skötuveislu á Hótel Loftleiðum með Finni Ingólfssyni?


mbl.is Sigmundur Davíð býður sig fram til formanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðasti naglinn í kistu Árna

Þetta álit umboðsmanns sem var nógu lengi á leiðinni hlýtur að vera
síðasti naglinn í kistu Árna Mathiesen. Þetta er þungur áfellisdómur
yfir málsmeðferð Árna, röksemdarfærslu og ráðningu. Árni ætti að sýna
sóma sinn í að segja af sér tafarlaust. Nægur er skaðinn sem hann hefur
valdið.
mbl.is Annmarkar á skipun dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir tengdir formönnum Sjálfstæðisflokks

Páll Hreinsson hæstaréttardómari var aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar í forsætisráðuneytinu. Tryggvi Gunnarsson vann náið með Þorsteini Pálssyni fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins. Sigríður Benediktsdóttir er tengd Geir Haarde forsætisráðherra en er Samfylkingarkona.  Skemmtileg skipan óháðrar nefndar. Hvar er fulltrúi almennings. Ekki sé ég hann. Ég sé bara þæga rakka sem munu ekki finna neitt misjafnt, ja nema kannski að velja einhverja 2 eða 3 sem verður fórnað á altari friðþægingar til almennings.
mbl.is Rannsóknarnefndin fullskipuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað segirðu um 0 krónur Davíð?

Hvað segirðu um að lækka launin bara um 100% Davíð? Hvernig líst þér á að bætast bara í hóp þeirra 20.000 sem verða atvinulausir meðan þú situr á Svörtuloftum með 1.3 milljónir króna? Það er amk mín tillaga.
mbl.is Laun seðlabankastjóra lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En áfram situr ríkisstjórnin

20.000 manns án atvinnu en ríkisstjórnin situr sem fastast og lætur mótmæli, aðgerðir, skoðanakannanir og annað sem fólk gerir til að andæfa stjórnarfarinu og stjórnarleysinu sem vind um eyru þjóta.

Ætli það sé alveg sama hvað við gerum? Það styttist í grófari mótmæli, það er ég sannfærður um. 


mbl.is Allt að 20 þúsund án atvinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Math á lausu?

Af hverju sækir Árni Matthísen ekki bara um? Hann er vonlaus fjármálaráðherra. Afleitur í að skipa í dómarastöður. Þetta hentar honum afar vel því einhvern þarf að setja í stólinn til að sýkna alla sem komu að hruninu; Seðlabankastjóra, ríkisstjórn og eftirlitsstofnanir.
mbl.is Enginn sótti um embætti sérstaks saksóknara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íbúðalánasjóður bjargar Kaupþingi

Auðvitað þarf ríkið að bjarga Kaupþingi eftir 100.000.000.000 klúðrið í Lúx. Smá millifærslur til að fela pening, nokkrir millistjórnendur reknir og svo þarf ríkið að koma og redda - aftur. Fékk ekki Kaupþing lánaðar hundrað millur rétt fyrir fallið?
mbl.is Íbúðalánasjóður til bjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband